Home Fréttir Í fréttum 23.03,2023 Múrverk 2023 í hverfum 1, 2, 3 og 4, 5...

23.03,2023 Múrverk 2023 í hverfum 1, 2, 3 og 4, 5 í fasteignum Reykjavíkurborgar

139
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Múrverk 2023 í hverfum 1, 2, 3 og 4, 5 í fasteignum Reykjavíkurborgar, útboð nr. 15774

Fasteignirnar eru: Sundhöll Reykjavíkur, Vesturbæjarlaug, Sundlaug í Laugardal og Höfði.

Um er að ræða múrverk í fasteignum Reykjavíkurborgar

Lokaskiladagur verksins er  31. desember 2023.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 þann 2. mars 2023.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:15 þann 23. mars 2023.