Home Fréttir Í fréttum 28.03.2023 Þróttur aðalvöllur- Endurnýjun gervigrass

28.03.2023 Þróttur aðalvöllur- Endurnýjun gervigrass

160
0
Þróttur – Laugardal Mynd: Visir.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Þróttur aðalvöllur- Endurnýjun gervigrass, EES útboð nr. 15760

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið fellst í útvegun og fullnaðarfrágangi á nýju gervigrasi á endurnýjaðan aðalvöll  Þróttar í Laugardal Reykjavík, ásamt nýjum staðsteyptum (in-situ) fjaðurlagspúða. Gervigrasið skal vera af bestu fáanlegum gæðum og uppfylla staðal Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA fyrir FIFA Quality Pro.

Grasið skal vera með grænni verksmiðjuframleiddri EPDM Virgin innfyllingu auk silica sands eftir forskrift framleiðanda. Farið verður fram á prófun þess að fullnaðarfrágangi loknum til staðfestingar á að heildarkerfi uppfylli fyrirliggjandi kröfur staðals og útboðsgagna.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 23. febrúar 2023.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 28. mars 2023.