Home Fréttir Í fréttum Tveir iðnaðarmenn með brunasár en ekki í lífshættu

Tveir iðnaðarmenn með brunasár en ekki í lífshættu

116
0
Frá vettvangi upp úr hádegi. AÐSEND

Nokkrir iðnaðarmenn voru að stöfum í húsnæði Arctic Fish sem brann á Tálknafirði í morgun. Tveir þeirra hlutu brunasár og voru fluttir á sjúkrahús á Patreksfirði.

<>

Lögreglan á Vestfjörðum segir að meiðsl þeirra hafi ekki reynst lífshættuleg.

Eldurinn varð mjög mikill og var þjóðveginum við húsnæðið lokað vegna mikillar sprengihættu sem myndaðist, þar sem nokkrir gasfylltir gámar eru á svæðinu.

Allt tiltækt slökkvilið í Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi var kallað til vegna eldsins og þar að auki fóru sex slökkviliðsmenn á tveimur bílum frá Ísafirði. Björgunarsveitir á sunnanverðum Vestfjörðum aðstoðuðu einnig.

„Slökkvistarfið í dag hefur verið krefjandi. En slökkviliðinu tókst að verja nærliggjandi byggingar og tanka. Því er nú að mestu lokið og ástandið orðið tryggt,“ segir í færslu á Facebooksíðu lögreglunnar.

Þar segir að rannsóknarlögreglumaður sé kominn á vettvang til að rannsaka eldsvoðann og að Lögreglan á Vestfjörðum muni einnig njóta aðstoðar tæknideildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við rannsóknina.

Lögreglan segir ljóst að tjónið sé mjög mikið. Daníel Jakobsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Arctic Fish, sagði í viðtali við fréttastofu fyrr í dag að húsnæðið ætti að kosta um fjóra milljarða króna.

Heimild: Visir.is