Home Fréttir Í fréttum Styrkir úr Húsverndarsjóði Reykjavíkurborgar 2023

Styrkir úr Húsverndarsjóði Reykjavíkurborgar 2023

137
0

Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum.

<>

Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í umsókn

  • Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum
  • Tímaáætlun
  • Kostnaðaráætlun (með sundurliðun ef um er að ræða umfangsmiklar framkvæmdir)
  • Ljósmynd af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmynd ef hún er til

Frekari upplýsingar eru veittar af Húsverndarstofu sem er með opinn símatíma á miðvikudögum kl. 15-17. Sími: 411 6333. Einnig má senda tölvupóst á minjavarsla@reykjavik.is.

Umsóknir eru eingöngu mótteknar á Mínum Síðum á vefsíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is

Opnað var fyrir aðgengi að umsóknum þann 8. febrúar 2023 en lokað verður þann 1. mars 2023, kl. 23:59.

Vakin er athygli á því að styrkir sem úthlutað verður 2023 og verða ekki nýttir fyrir lok árs 2024 falla niður

Heimild: Reykjavik.is