Home Fréttir Í fréttum Múlinn í Neskaupstað fullsetinn

Múlinn í Neskaupstað fullsetinn

173
0
Múlinn samvinnuhús í Neskaupstað.

Múlinn samvinnuhús í Neskaupstað hefur verið í rekstri í tvö ár. Í húsinu starfa rúmlega 30 manns en nýverið voru gerðir tveir nýir leigusamningar í Múlanum.

<>

Annars vegar viðbótarsamningur við Matís sem hefur verið með starfsemi sína í húsinu frá opnun og hins vega nýjan samning við Framkvæmdasýsluna/Ríkiseiginir. Með þessum nýju leigusamningum eru öll rými hússins í útleigu og Múlinn þar með fullsetinn.

Til að bregðast við mikilli aðsókn í húsið samþykkti stjórn Múlans á fundi þann 16. janúar síðastliðinn að fá verkfræðistofu til að hanna viðbyggingu við húsið.

Það hefur verið gert ráð fyrir stækkun hússins í nokkurn tíma vegna mikillar aðsóknar en þegar Múlinn var 1 árs var ákveðið að skoða viðbyggingu og láta teikna hana upp.

Guðmundur Rafnkell Gíslason, framkvæmdastjóri Múlans, segir verkefnið á hönnunarstigi en að viðbyggingin verði í kringum 200-300 fermetrar vestan við húsið en í stíl við austari hluta byggingarinnar.

Heimild: Austurfrett.is