Home Fréttir Í fréttum Skoða nýja göngugötu í miðbænum

Skoða nýja göngugötu í miðbænum

228
0
Eik skoðar að opna nýja gönguleið með innigörðum á milli Austurstrætis, Hafnarstrætis og Tryggvagötu þar sem Landsbankinn hefur verið til húsa. Ljósmynd: Aðsend mynd

Eik á nú í þróunarvinnu vegna húsnæðis í Kvosinni sem Landsbankinn flytur senn úr.

<>

Fasteignafélagið Eik er nú með til skoðunar hvernig skrifstofuhúsnæði í Kvosinni sem leigt hefur verið til Landsbankans verði nýtt til framtíðar.

Landsbankinn flytur senn í nýjar 16.500 fermetra höfuðstöðvar. við Austurbakka.

Í uppgjöri Eikar kemur fram að þróunarvinna standi yfir þar sem líkur séu á að nýtingu eignanna verði breytt. Nokkrir möguleikar komi til greina en m.a. sé þörf á að fá leyfi frá Reykjavíkurborg á endanlegri tillögu.

Meðal þess sem kemur til greina er að opna gönguleiðir milli bygginganna sem næði á milli Austurstrætis, Hafnarstrætis og Tryggvagötu með innigörðum.

„Við brottför Landsbankans úr Kvosinni skapast mikil tækifæri til þróunar á reitnum. Ein hugmynd er að opna gönguleiðir í gegnum byggingarnar og hafa innigarða,” segir í uppgjörinu.

Heimild: Vb.is