Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Mýrdalshreppur: Samningur um nýjan leikskóla undirritaður við SG Hús

Mýrdalshreppur: Samningur um nýjan leikskóla undirritaður við SG Hús

217
0
Baldur Pálsson framkvæmdastjóri SG Húsa og Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri Mýrdalshrepps takast í hendur við undirritun verksamnings. Með á myndinni er Tómas Ellert Tómasson byggingarverkfræðingur SG Húsa. Mynd: Mýrdalshreppur

Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri Mýrdalshrepps og Baldur Pálsson framkvæmdastjóri SG húsa undirrituðu í dag verksamning um byggingu nýs leikskóla í Vík.

<>

Verkið var boðið út í desember sl. og buðu SG Hús lægst í verkið, samtals 409 milljónir kr. Útboðið miðaði að því að skila verkinu á byggingarstigi 3 – tilbúið til innréttingar.

SG Hús buðu jafnframt í viðbótarverkþætti sem miða að því að skila byggingunni frágenginni m.v. byggingarstig 4. Sveitarstjórn samþykkti á fundi 18. janúar sl. að taka tilboði SG Húsa með viðbótarverkþáttum. Heildartilboðsverð er því 475 milljónir kr.

Bygging nýs leikskóla í Vík er stærsta einstaka framkvæmd sem sveitarfélagið hefur ráðist í síðan nýtt íþróttahús var byggt fyrir um 20 árum.

Framkvæmdin markar upphafið að umfangsmikilli uppbyggingu sem er liður í því að geta þjónustað vaxandi samfélag.

Nýr leikskóli er hannaður fyrir allt að 60 börn og gerir hönnunin ráð fyrir því að hægt sé að stækka hann í framhaldinu. Upphaflega gerði hönnun skólans ráð fyrir því að hann yrði staðsteyptur en ákveðið var sl. haust að bjóða hann aftur út miðað við að hann yrði smíðaður úr verksmiðjuframleiddum einingum.

Heimild: Vik.is