Mikil eftirvænting er hjá íbúum á Höfn í Hornafirði fyrir nýjum miðbæ, sem er nú búið að teikna upp og er verið að undirbúa að byggja. Nýi miðbærinn verður í gömlum stíl líkt og miðbærinn á Selfossi.
Fyrstu drög og teikningar af nýja miðbænum liggja nú fyrir en það er Skinney Þinganes, sem stendur á baki verkefninu í samstarfi við Batteríið arkitekta en sú stofa hannaði meðal annars nýja miðbæinn á Selfossi.
„Já, hann verður glæsilegur og að mörgu leyti svipar honum til nýja miðbæjarins á Selfossi. Að vísu erum við ekki að endurgera gömul hús en húsin verða mjög fjölbreytt og brotin upp bæði með litum og formi, þannig að við erum mjög spennt hérna fyrir næstu árum,“ segir Sigurjón Andrésson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar aðspurður um nýja miðbæinn.
En hvenær gætu framkvæmdir hafist við nýja miðbæinn?
„Ætli björtustu vonir geri ekki ráð fyrir því að fyrsti hluti verði tekin í gagnið eftir tvö til þrjú ár.Þetta er mjög mikil framkvæmd, sem kostar mikið. Þetta er stórt svæði, sem á að taka undir öll þessi nýju hús en við erum svo heppin að við eigum öflug fyrirtæki, sem eru tilbúin að fjárfesta hér í heimabyggð í innviðum og við fögnum því,“ bætir Sigurjón við.
Í nýja miðbænum verða íbúðir, verslanir og mathöll svo eitthvað sé nefnt. Sveitarfélagið þarf ekki að kaupa upp nein hús eða byggingar þar sem miðbærinn mun rísa, því flestar bygginganna eru í eigu Skinneyjar-Þinganes og uppbyggingarsvæðið er á þeirra athafnasvæði. Einhver hús eins og gamlir braggar munu fá að standa.
Heimild: Visir.is