Home Fréttir Í fréttum Nýtt fjölbýlishús mun rísa við Garðabraut 1 á Akranesi

Nýtt fjölbýlishús mun rísa við Garðabraut 1 á Akranesi

528
0

Nýtt deiliskipulag Garðabrautar 1 var samþykkt í bæjarstjórn Akraness og verða miklar breytingar á svæðinu á næstu misserum.

<>

Á lóðinni stendur bygging sem KFUM og KFUK byggði sem félagsheimili á árunum 1975-1980.

Heimild hefur verið gefin til að rífa félagsheimilið og er áætlað að þar rísi fjölbýlishús með 51 íbúðum.

Nýja fjölbýlishúsið verður 4-7 hæða stölluð bygging og bílakjallari undir garði hússins. Fjöldi bílastæða ofan jarðar 21 stæði og neðan jarðar 48.

Samkvæmt vindgreiningu sem Örugg Verkfræðistofa gerði vegna fyrirhugaðrar byggingar kemur fram að framkvæmdin muni hafa jákvæð áhrif á vindafar við Þjóðbraut 1.

Heimild: Skagafrettir.is