Vegagerðin óskar eftir tilboðum í rekstur og þjónustu í Hvalfjarðargöngum árin 2023-2025.
Í aðalatriðum felst verkið í eftirfarandi:
- Útkallsþjónustu, þ.e. að bregðast við útköllum vegna bilana eða atvika sem verða í göngunum og bregðast þarf strax við.
- Umferðarstjórnun þegar göngunum er lokað eða umferð takmörkuð í gegnum þau, t.d. vegna úttekta og/eða viðhalds.
- Þátttöku og aðstoð vegna funda og æfinga viðbragðsaðila.
- Reglubundnu eftirliti og ástandsgreiningum.
- Viðhaldsvinnu á búnaði.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 2. desember 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. janúar 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.