Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Tafir á stáli seinka viðbyggingunni til vorsins 2024

Tafir á stáli seinka viðbyggingunni til vorsins 2024

174
0
Tölvuteiknið mynd af hinni fyrirhuguðu viðbyggingu sem hér er gráleit. Flugstöðin sem fyrir er hvíta byggingin. Tölvuteiknið mynd af hinni fyrirhuguðu viðbyggingu sem hér er gráleit. Flugstöðin sem fyrir er hvíta byggingin. ISAVIA

Reiknað er með að hægt verði að taka langþráða nýja viðbyggingu við Akureyrarflugvöll í notkun vorið 2024, tæpu ári á eftir áætlun. Tafir við afhendingu á ýmsum aðföngum, svo sem stálgrind hússins, gera þetta að verkum.

<>

Heimamenn og ýmsir hagsmunaaðilar hafa lengi kallað eftir stækkun á aðstöðu flugvallarins. Með auknumillilandaflugi hefur núverandi flugstöðvarbygging ekki verið talin duga. Auk þess hafa flugmenn gert athugasemd við stærð flughlaðsins, ekki síst með tilliti til hlutverks flugvallarins sem varaflugvöll fyrir Keflavíkurflugvöll.

Það var því mikið fagnað í júní á síðasta ári þegar fyrsta skóflustungan að nýrri viðbyggingu var tekin. Um er að ræða 1.100 fermetra viðbygging við núverandi flugstöð með aðstöðu fyrir toll og lögreglu, fríhöfn og veitingastað, auk endurbóta á núverandi flugstöð. Framkvæmdir hófust á þessu ári og samhliða hófust framkvæmdir við stækkun flughlaðs flugvallarins. Áætluð verklok voru síðsumars á næsta ári.

Stálgrindin berst í mars

Greint var frá því í haust að ljóst væri að vegna tafa á aðföngum myndi framkvæmdin frestast um einhverja mánuði. Nú er útlit fyrir að stálgrind hússins, sem vonir voru bundnar við að myndi koma til landsins fyrir áramót, muni ekki berast fyrr en í mars.

Hjördís Þórhallsdóttir, flugvallarstjóri á Akureyrarflugvelli, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla. Myndin er tekin í tilefni af fyrstu skólfustungu verksins í júní á síðasta ári.
ISAVIA

„Það sem við höfum fengið staðfest frá verktakanum er að stálgrindin komi í mars og það mun taka einhverja mánuði að byggja húsið, reisa það og gera klárt að innan. Í beinu framhaldi af því verður farið í gömlu flugstöðina, eða núverandi flugstöð, og hún aðlöguð,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, í samtali við Vísi.

„Við gerum ráð fyrir því að þetta verði allt saman tilbúið vorið 2024, eða fyrir sumarið 2024,“ segir hún enn fremur og bætir við að ástæðan sé einfaldlega sú að víða um heim sé verið að glíma við skort á aðföngum og tafir í aðfangakeðjum. Covid-19 og innrás Rússa í Úkraínu hefur sett strik í marga slíka reikninga, víða um heim.

„Hvort sem það eru íhlutir eða færibönd. Þetta tekur allt miklu lengri tíma en við þekkjum,“ segir Sigrín Björk.

Akureyrarflugvöllur
VÍSIR/TRYGGVI

Framkvæmdir við stækkun flughlaðsins eru þó á áætlun. Reiknað er með að síðasti áfangi þess, malbikun, verði boðin út í kringum áramótin.

„Það gengur samkvæmt áætlun. Þar er nú verið að vinna lagnavinnuna. Það er töluvert mikil lagnavinna því að þarna er verið að leggja fyrir hlaðljósum, olíuskiljum og fleiru. Það er áætlað að því ljúki næsta vor. Síðasti áfanginn í því verkefni er að malbika,“ segir Sigrún Björk.

Aðspurð að því hvort, í ljósi mikillar eftirvæntingar heimamanna fyrir stærri og betri flugstöð, að það séu ekki vonbrigði að horfa upp á tæplega árs töf á framkvæmdum, segir hún einfaldlega ekkert við því að gera.

„Þetta er bara staðan hjá flestum fyrirtækjum í dag sem standa í þessu. Þetta er bara eitthvað sem við verðum að horfumst í augu við að taki lengri tíma. Það er alveg hægt að ergja sig á þessu en það þjónar engum tilgangi.“

Heimild: Visir.is