Consensa fyrir hönd Grindavíkurbæ óskar eftir tilboðum í endurbætur á grunnskóla Grindavíkur sem staðsettur er við Ásabraut 2, 240 Grindavík.
Um er að ræða niðurrif á núverandi klæðningu og uppsetningu á nýrri utanhúsklæðningu, gluggaskiptum að hluta ásamt þéttingu og viðhaldi á eldri gluggum.
Verkið samanstendur af eftirfarandi verkáföngum:
1. Áfangi (Gult svæði) – Framkvæmdartími áfangans er sumarið 2023
2. Áfangi (Grænt svæði) – Framkvæmdartími áfangans er sumarið 2024
3. Áfangi (Rautt svæði) – Framkvæmdartími áfangans er sumarið 2025
Um er að ræða fullnaðarfrágang verksins samkvæmt skilmálum útboðslýsingar. Verkkaupi sér um að útvega allar hurðir og glugga sem fyrirhugað er að endurnýja í ofangreindum verkáföngum.
Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.is og í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á útboðsvefnum á vefslóðinni:
https://tendsign.is/doc.aspx?UniqueId=afjnndxkpo&GoTo=Tender
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á útboðsvef eigi síðar en: kl. 12:00 þann 1. desember 2022.
Hafa skal í huga að tilboðfrestir geta tekið breytingum og eru allar slíkar breytingar eingöngu tilkynntar inn á útboðsvefnum og gildir sá tími sem þar er tiltekinn.