Home Fréttir Í fréttum Tryggja sér fyrsta raf­magns­steypu­bílinn

Tryggja sér fyrsta raf­magns­steypu­bílinn

209
0
Björn Ingi Victorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar. Ljósmynd: Gígja Einars

Steypustöðin gekk í vikunni frá samningi við stærsta steypudælu og -bílaframleiðanda heims, Putzmeister, um fyrsta rafmagnsknúna steypubílinn.

<>

Steypustöðin gekk í vikunni frá samningi við stærsta steypudælu og -bílaframleiðanda heims, Putzmeister, um fyrsta rafmagnsknúna steypubílinn. Bifreiðin, sem er 100% rafknúin, verður sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum frá framleiðandanum, segir í tilkynningu.

Steypustöðin gekk einnig frá kaupum á Hybrid steypudælu og mun því geta dælt steypu á byggingasvæðum með lágri kolefnislosun frá flutningum.

„Það er ótrúlega gaman að ganga frá þessum samningi, það er mikill heiður að Ísland fái fyrsta rafmagnsknúna steypubílinn frá Putzmeister og það er ákveðinn viðurkenning fyrir íslenska steypumarkaðinn að fá þetta traust og ryðja þannig brautina í heiminum fyrir umhverfisvæna steypuflutninga,“ segir Björn Ingi Victorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar.

Hljóðmengun úr sögunni

Hljóðmengun frá dísilknúnum vélum í framkvæmdum er oft á tíðum mikil truflun fyrir íbúa á staðnum. Björn segir að rafmagnssteypubílinn sé einstaklega hljóðlátur og valdi lítilli hljóðmengun.

„Hljóðmengun er mikið vandamál þegar verið er að steypa í dag með tilkomu þéttingu byggðar. Vélin í þessum rafmagnssteypubíl er einstaklega hljóðlát og nágrannar á svæðinu geta svo sannarlega sofið út þó að verið sé að steypa.“

Tvinndæla einnig hluti af pakkanum

„Til að taka skrefið af fullri alvöru höfum við einnig fest kaup á tvinndælu sem dælir á 100% rafmagni á verkstað. Þannig myndast enginn kolefnisútblástur á verkstað á meðan á steypuframkvæmdum stendur,“ segir Björn.

Rafmagnssteypubíllinn og tvinndælan er fyrsta skrefið sem Steypustöðin tekur í átt að orkuskiptum frá þungum dísilbílum í græna rafbíla. Í áætlunum félagsins er lögð áhersla á að skipta út öllum dísilvélum fyrir rafmagn og aðra umhverfisvænni orkugjafa.

Kaflaskip fyrir íslenskan byggingariðnað

Að sögn Björns eru þetta algjör kaflaskil fyrir íslenskan byggingariðnað, þar sem nú sé hægt að flytja og dæla grænni og umhverfisvænni steypu með rafknúnum steypubíl og dælu á verkstað sem lækkar umtalsvert kolefnisspor steypunnar.

„Við erum fyrst og fremst að búa til þennan valkost fyrir viðskiptavini, í dag bjóðum við upp á græna steypu með minna kolefnisspori, snjallsteypu sem dregur úr notkun á sementi sem leiðir til minna kolefnisspors og endurvinnslu á steypu.

En með orkuskiptum úr dísilknúnum steypubílum erum við að taka enn stærra skref í átt að alvöru kolefnisparnaði sem byrjar strax,“ segir Björn að lokum.

Heimild: Vb.is