Home Fréttir Í fréttum 20.10.2022 Hverfið mitt 2022 Vestur – Miðborg og Hlíðar

20.10.2022 Hverfið mitt 2022 Vestur – Miðborg og Hlíðar

117
0
Mynd: Haraldur Guðjónsson

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hverfið mitt 2022. Vestur – Miðborg og Hlíðar, útboð nr. 15674

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2022 í vesturhluta Reykjavíkurborgar.

Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir jarðvinna, hellulögn og þökulögn.

Helstu magntölur eru:

  • Gröftur                 340 m3
  • Fylling                  310 m3
  • Hellulögn              370 m2
  • Þökulögn              428 m2

Verklok: 31. desember 2022.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:30 þann 10. október  2022. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 20. október 2022.