Home Fréttir Í fréttum 04.10.2022 Ævintýraborg – Vogabyggð – Lóðafrágangur

04.10.2022 Ævintýraborg – Vogabyggð – Lóðafrágangur

486
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Ævintýraborg – Vogabyggð – Lóðafrágangur – útboð nr. 15657.

Um er að ræða lóðafrágang vegna byggingar nýs leikskóla í nýju hverfi Vogabyggðar í Reykjavík. Verkið felur allan yfirborðfrágang í aðkomu að skólanum frá Naustavogi ásamt frágangi á leiksvæði skólans. Fyrir framan skólann eru 25 bílastæði sem verða malbikuð ásamt bílastæði fyrir hreyfihamlaða sem er hellulagt. Gönguleiðir og aðkoma að er að öðru leiti hellulögð. Á leiksvæði er hluti verks að helluleggja ásamt því að byggja upp svæði í kringum leiktæki á leiksvæði. Leiktækin og uppsetning þeirra er ekki hluti af verkinu. Hluti verks er einnig ýmis frágangur á grónum svæðum og gróðursetning platna.

Helstu magntölur eru: 
Hellulögn          1562 m2
Malbik              870 m2
Fallvörn            680 m2
Gervigras         690 m2

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 13. september  2022. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 4. október 2022.