F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Vogabyggð 2. Arkarvogur og Drómundarvogur – Gatnagerð og lagnir, útboð nr. 15654
Yfirlit yfir verkið sést á afstöðumynd og yfirlitsmyndum. Um er að ræða
heildarframkvæmda fyrir fráveitu í götustæði í Arkarvogi, jarðvinna undir götur og
stéttar, yfirborðsfrágangur götu og gangstétta, götulýsing og frágangur regnbeða
ásamt gróðursetningu.
Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:
– Fullnaðarfrágangur jarðvinna undir nýjar götur og gangstéttastæði.
– Fullnaðarfrágangur fráveitulagnir í Arkarvogi.
– Fullnaðarfrágangur götulýsingar í Arkarvogi og Drómundarvogi.
– Fullnaðarfrágangur púkklags.
– Fullnaðarfrágangur á neðra- og efra malbikslagi í Arkarvogi.
– Fullnaðarfrágangur kantsteins og hellulagðs yfirborðs.
– Fullnaðarfrágangur blágrænna beða og gróðursetningar.
Helstu magntölur verksins eru:
· Upprif á malbiki 15 m²
· Malarfylling 50 m³
· Púkkmulningur 1.250 m²
· Malbikun 1.360 m²
· Hellulögn 2.500 m²
· Forsteyptur kantsteinn 300 m
· Tré og plöntur 375 stk
· Fráveitulagnir 45 m
· Brunnar 1 stk
· Jarðstrengir vegna götulýsingar 700 m
· Ljósastaurar 5m 21 stk
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 13. september 2022.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 27. september 2022.