Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun tilboða í byggingu knatthúss Hauka

Opnun tilboða í byggingu knatthúss Hauka

837
0

Á  fimmtudag 26. ágúst voru opnuð tilboð í byggingu knatthúss Hauka að Ásvöllum í Hafnarfirði. Tilboðin voru opnuð kl. 14 í húsnæði umhverfis- og skipulagssviðs Hafnarfjarðarbæjar að Norðurhellu 2.

<>

Um miðjan júní óskaði Hafnarfjarðarbær eftir tilboðum verktaka í 1. áfanga knatthúss Hauka sem felur í sér að byggja að Ásvöllum 1 fullbúinn knattsal með tæknirýmum, uppsteyptri þjónustubyggingu og lóðafrágangi. Stært knattsalar er 10.284 m² með fullbúnum knattspyrnuvelli í keppnisstærð ásamt hliðarsvæðum, 33 m² inntaksrými og uppsteypt 873 m²þjónustubygging.

Eftirfarandi tilboð bárust:

 

  • Íslenskir aðalverktakar hf.                            3.399.107.883.-
  • Stálgrindarhús ehf. í samstarfi við SG BYGG   3.437.525.677.-
  • GG Verk ehf.                                                3.889.484.141.-
  • Flotgólf ehf.                                                 4.704.220.717.-
  • K16 ehf.                                                      3.780.721.218.-

 

Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á kr. 3.091.222.162.- Fundarmenn voru inntir eftir fyrirvörum eða athugasemdum við útboðsgögn. Engar athugasemdir bárust.

Framkvæmdanefnd um knatthús á Ásvöllum mun funda í næstu viku þar sem tekin verður afstaða til tilboðanna.