Framkvæmdir á fyrsta áfanga Hlemmtorgsins svokallaða á Rauðarárstíg eru hafnar. Lokað hefur verið fyrir umferð á Rauðarárstíg frá Bríetartúni og þegar framkvæmdum lýkur verður vegurinn lokaður sunnan gömlu gasstöðvarinnar við Hlemm til frambúðar.
Í tilkynningu á vef Reykjavíkur að gert sé ráð fyrir að framkvæmdum við endurgerð lagna og á yfirborði göturýmis frá Bríetartúni að Gasstöðinni á Hlemmi ljúki vorið 2023.
Í verklýsingu segir að gatnamót við Bríetartún verði upphækkuð og akstursrými afmarkað með lágum tveggja og fjögurra sentímetra háum kantsteini. Gert sé ráð fyrir hönnun götu í einum fleti og að akstursrýmið verði hellulagt. Rauðarárstígur verði lokað til suðurs við Gasstöðina á Hlemmi og með snúningshring fyrir fólksbíla í botni götunnar. Rafhleðslustæði verði nyrst í götunni og sleppistæði fyrir leigubíla.
Þá verði aðkomusvæði íbúðarhúsa meðfram húsaröð við Rauðarárstíg þar sem útfæra má í samráði við húseigendur tröppur, gróðurkassa með klifurgróðri og hellusvæði.
Gera má ráð fyrir nokkru raski af framkvæmdunum þar sem töluverð klöpp er í Rauðarárstíg og verktakanum Almaverk verður gefinn kostur á bæði sprengingum og fleygun. Gert er ráð fyrir hávaða á vinnutíma í um það bil þrjá mánuði.
Heimild: Visir.is