Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Framkvæmdir við nýjan hringveg þvert yfir Hornafjörð hefjast með haustinu

Framkvæmdir við nýjan hringveg þvert yfir Hornafjörð hefjast með haustinu

149
0
Tölvuteikning af nýrri leið yfir Hornafjörð. Verkinu fylgja alls fjórar nýjar brýr og nítján kílómetrar af nýjum vegum. VEGAGERÐIN

Vegagerðin og Ístak hafa skrifað undir 6,3 milljarða króna verksamning um gerð nýs vegar þvert yfir Hornafjörð, sem styttir hringveginn um tólf kílómetra. Samningurinn markar tímamót því hann er sá fyrsti á grundvelli laga um samvinnuverkefni, en í því felst einkafjármögnun og að vegfarendur greiði vegtoll.

<>

Fyrra útboð verksins klúðraðist og reyndust tilboð þá svo hátt yfir kostnaðaráætlun að Vegagerðin ákvað að bjóða verkið út að nýju, með þeirri breytingu að verktaka væri einungis gert að fjármagna verkið á verktíma en langtímafjármögnun undanskilin. Þegar tilboð voru opnuð í síðara útboðinu fyrir tveimur mánuðum reyndist Ístak eiga lægsta boð, eins og í fyrra útboði.

Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks, og Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri rituðu undir verksamninginn.
VEGAGERÐIN

Í verkinu felst lagning nítján kílómetra langs þjóðvegar og mun einbreiðum brúm á hringveginum fækka um þrjár. Fjórar nýjar brýr verða byggðar, sú lengsta yfir Hornafjarðarfljót, 250 metra löng. Hinar verða 114 metra löng brú yfir Hoffellsá og 52 metra langar brýr yfir Djúpá og Bergá. Einnig verða lagðir hliðarvegir, samtals um níu kílómetra langir, auk tveggja áningarstaða.

Nýja brúin yfir Hornafjarðarfljót verður 250 metra löng og í sex höfum.
VEGAGERÐIN

Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks, segir í samtali við fréttastofu að framkvæmdir hefjist með haustinu. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. desember 2025, eftir rúm þrjú ár, en greint var frá undirritun samningsins í frétt Stöðvar 2.

Heimild: Visir.is