Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Garðabær. Framkvæmdir við íbúðakjarna við Brekkuás 2

Opnun útboðs: Garðabær. Framkvæmdir við íbúðakjarna við Brekkuás 2

466
0
Mynd: Garðabær

Úr fundargerð Bæjarráðs Garðabæjar þann 05.07.2022

<>

Opnun tilboða í framkvæmdir við íbúðakjarna við Brekkuás 2.

Eftirfarandi tilboð lögð fram í framkvæmdir við- íbúðakjarna við Brekkuás.

Stéttafélagið ehf.             kr. 445.764.310
Húsasmíði ehf.                kr. 424.500.000
Gunnar Bjarnason ehf.     kr. 390.006.711

Kostnaðaráætlun            kr. 407.156.451

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Gunnars Bjarnsonar ehf.. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins.

Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.