Home Fréttir Í fréttum Byggingarkostnaður gæti lækkað um 4-6 milljónir

Byggingarkostnaður gæti lækkað um 4-6 milljónir

87
0

Samtök iðnaðarins telja að hægt sé að lækka byggingarkostnað minni íbúða um fjórar til sex milljónir króna.

Hægt er að lækka byggingarkostnað minni íbúða um fjórar til sex milljónir króna með einföldum hætti. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Samtaka iðnaðarins sem RÚV greinir frá. Í rannsókninni mátu samtökin gögn um byggingarkostnað í þeim tilgangi að lækka kostnaðinn og auka framboð á smærri íbúðum.

<>

„Við erum þarna að skoða raunverulegar tölur um byggingarkostnað og greina hann með tilliti til þeirra þátta sem mynda kostnaðinn. Niðurstaðan er sú að það er ansi stórt hlutfall, um 30%, sem felur í sér liði sem opinberir aðilar geta haft áhrif á, til lækkunar á byggingarkostnaði,“ segir Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, í samtali við RÚV.

Taka samtökin dæmi af byggingu 115 fermetra íbúðar í þriggja til fjögurra hæða fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu. Heildarkostnaðurinn nemur um 36 milljónum króna, en þar af fara tæpar 26 milljónir í byggingarkostnaðinn sjálfan. Tæplega fjórar á og hálf milljón fer í lóðina og tæpar fjórar milljónir í annað, svo sem veitu-, umsýslu og leyfisgjöld. Loks fara tvær milljónir í að uppfylla nýja byggingarreglugerð.

Samtök iðnaðarins telja að hægt sé að lækka þennan kostnað um fjórar til sex milljónir króna.

Heimild: Vb.is