Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Á fjórða hundrað milljónir komnar í endurbætur á Ráðhúsinu í Vestmannaeyjum

Á fjórða hundrað milljónir komnar í endurbætur á Ráðhúsinu í Vestmannaeyjum

274
0
Unnið hefur verið að endurbótum á Ráðhúsinu að utan jafnt sem innan. Ljósmynd/TMS

Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Ráðhúsi Vestmannaeyja undanfarin misseri.

<>

Að sögn Ólafs Þórs Snorrasonar, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar er reiknað með að starfsemi stjórnsýslu og fjármálasviðs flytji inn síðar í mánuðinum.

Hann segir framkvæmdir á miðhæð og efstu hæð hafa gengið vel undanfarið. „Kjallarinn verður ekki tilbúinn strax enda var ekki reiknað með því í upphafi.” segir Ólafur Þór.

Ólafur segir aðspurður að bókfærður kostnaður í lok maí hafi numið um 355 miljónum en áfram er unnið að verkinu. „Gert var ráð fyrir 120 milljónum í verkið á þessu ári.” segir hann.

Halldór B. Halldórsson, myndaði Ráðhúsið í vikunni. Myndband hans má sjá hér að neðan.

Heimild: Eyjar.net