Home Fréttir Í fréttum 30.06.2022 Leikskólinn Reynisholt – Ungbarnasvæði innan lóðar

30.06.2022 Leikskólinn Reynisholt – Ungbarnasvæði innan lóðar

456
0
Leikskólinn Reynisholt - Ljósmynd

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Reynisholt–  Ungbarnasvæði innan lóðar, útboð nr. 15507

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið snýr að gerð ungbarnasvæðis innan lóðar leikskólans Reynisholts  við Gvendargeisla 13, 113 Reykjavík.Svæðið sem um ræðir er á nyrsta hluti lóðarinnar sunnan við vesturhluta leikskólabyggingar en einnig er gert ráð fyrir smávægilegum breytingum á suðurhluta lóðar.

Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Áætluð verklok: 30. september 2022.    

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00 þann 14. júní  2022.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30 þann 30. júní 2022.