Home Fréttir Í fréttum 30.06.2022 Leikskólinn Klambrar – Endurgerð lóðar 1. áfangi

30.06.2022 Leikskólinn Klambrar – Endurgerð lóðar 1. áfangi

169
0
Mynd: Reykjavik.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Leikskólinn Klambrar – Endurgerð lóðar 1. áfangi, útboð nr. 15503

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið er 1. áfangi í endurgerð lóðar leikskólans Klambra við Háteigsveg 33, 105 Reykjavík. Svæðið sem um ræðir er nyrsti hluti lóðarinnar en teygir sig suður með leikskólabyggingunni og er um það bil 1.150 m².

Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Áætluð verklok: 30. september 2022.    

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:30 þann 14. júní  2022.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 30. júní 2022.