Home Fréttir Í fréttum Borgar­lína mikil­vægari en borgar­stjóra­stólinn

Borgar­lína mikil­vægari en borgar­stjóra­stólinn

78
0

Dagur B. Eggertsson segir það skipta sig meira máli að tryggja framgang lykilverkefna á borð við Borgarlínu en að vera borgarstjóri. Tilkynnt var í dag að Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, myndi taka við borgarstjórastólnum eftir átján mánuði og gegna embættinu meirihluta kjörtímabilsins.

<>

Dagur kveðst ánægður með nýjan meirihlutasáttmála og þá sátt sem fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar hafi náð í lykilmálaflokkum á borð við húsnæðismál, samgöngumál, loftslagsmál, velferðarmál og málefni barna. Það sé spennandi að vinna með Framsókn og fá þar með nýja rödd og áherslur inn í samstarfið.

„Ég hef trú á því að það að séu ólíkir flokkar í samstarfi með svolítið ólík sjónarhorn geri ákvarðanir betri, betur undirbúnar og við erum auðvitað að stjórna fyrir hönd borgarbúa, að þróa borgina í takt við það sem kallað var eftir í kosningunum,“ sagði Dagur að loknum blaðamannafundi oddvita flokkanna í dag.

Oddvitarnir hafi gefið sér tíma í að fara vel yfir alla málaflokka og skoða hvað mætti gera betur og hraðar. Fulltrúarnir hafi verið staðráðnir í því að finna lausnir þar sem misræmi var í stefnu flokkanna og verið sammála um að mynda sterkan og samhentan meirihluta.

„Ég held að við munum sækja í umræðurnar þessa daga öll þessi ár þegar við erum í þessum verkefnum, svo fyrir mér var þetta ómetanlegur tími.“

Fái bæði reynslu og breytingar

Aðspurður út í forsendurnar að baki því að deila borgarstjórastólnum segir Dagur að kannanir hafi sýnt fyrir kosningar að stærstur hópur borgarbúa hafi viljað sjá sig leiða borgina áfram en á sama tíma hafi verið sterk krafa um breytingar.

„Með þessu þá erum við kannski að svara hvoru tveggja. Samfylkingin er stærsti flokkurinn en Framsókn og Píratar eru ótvíræðir sigurvegarar kosninganna. Við búum svo vel í þessum meirihluta að hafa þessa breidd og ákváðum að skipta svona með okkur verkum, þá nýtist bæði reynslan en þetta nýja og ferska kemur líka inn,“ segir Dagur.

Dagur bætir við að honum finnist skipta mestu máli að með myndun þessa meirihluta sé verið að tryggja framgang lykilverkefna sem hafa verið lengi í undirbúningi en séu núna að komast til framkvæmda. Þar á meðal sé Borgarlína, hjólreiðaáætlun, ný menntastefna og margt fleira sem flokkarnir séu sammála um.

„Með þessum meirihluta þá fáum við nægilegan slagkraft til þess að fylgja þessu eftir og það hefur alltaf verið það sem er langefst í mínum huga, ekki það nákvæmlega í hvaða stól ég er.”

Heimild: Visir.is