Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Heilbrigðisráðherratók fyrstu skóflustunguna að nýju bílastæða – og tæknihúsi Nýs Landspítala

Heilbrigðisráðherratók fyrstu skóflustunguna að nýju bílastæða – og tæknihúsi Nýs Landspítala

85
0
Mynd: NLSH ohf.

Bílastæða- og tæknihúsið ásamt bílakjallara glæsileg viðbót

<>

Heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, tók í dag fyrstu skóflustungu að nýju bílastæða – og tæknihúsi (BT húsi) ásamt Pétri Guðmundssyni stjórnarformanni Eyktar og Runólfi Pálssyni forstjóra Landspítala. Þá tóku fulltrúar starfsmanna, þær Rannveig Rúnarsdóttir frá LSH og Þórana Elín Dietz frá HÍ einnig skóflustungu að húsinu.

Mynd: NLSH ohf.

Nýtt bílastæða- og tæknihús verður um 19.000 fermetrar að stærð með um 500 bílastæði. Auk þess eru um 200 hjólastæði í húsinu en einnig eru 200 bílastæði í bílakjallara við meðferðarkjarnann fyrir sjúklinga og aðstandendur.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra: “Það er ánægjulegt að enn bætast við byggingar sem eru á framkvæmdastigi hér í þessari mikilvægu uppbyggingu við nýjan Landspítala. Vel hefur tekist til hér við framkvæmdir á svæðinu og bílastæða – og tæknihúsið er áfangi á þessari vegferð að nýjar byggingar hér á svæðinu myndi eina heild,“.

Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri Nýs Landspítala: „Jarðvinnu á rannsóknahúsinu er lokið og nú strax hefst nýr áfangi við jarðvinnu á bílastæða – og tæknihúsinu. Eftir alútboð var samið við Eykt um bæði hönnun og verkframkvæmd og markar því dagurinn í dag eitt af mörgum mikilvægum skrefum í hraðri uppbyggingu hér við Hringbraut,“.

Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala: „Það er ánægjulegt að sjá hversu góður skriður hefur verið á verkefninu um nýjan Landspítala. Við fögnum hverjum áfanga, stórum sem smáum, á þessari vegferð því takmarkið færist nær. Bílastæða- og tæknihúsið er mikilvægur hlekkur í þessu stóra verkefni,“.

Pétur Guðmundsson, stjórnarformaður Eyktar ehf: “Við hjá Eykt þekkjum vel til Hringbrautarverkefnisins, en við erum núna að steypa upp meðferðarkjarnann, þar er allt á fullri ferð. Samstarfið gengur vel við Nýja Landspítalann og húsið sem nú fer af stað er enn ein ný áskorun,”.

 

Rauða örin vísar til hvar nýtt bílastæða – og tæknihús mun rísa Mynd: NLSH ohf.

Um bílastæða og tæknihúsið (BT húsið)

Bílastæða- og tæknihúsið verður um 19.000 fermetrar að stærð og er í raun átta hæðir, fimm hæðir ofan jarðar og þrjár hæðir neðanjarðar. Bílastæða og tæknihús eða (BT húsið) mun rúma stæði fyrir 510 bíla.

Í húsinu verður hjólageymsla fyrir 200 hjól. Bíla- og hjólastæði svæðisins verða til framtíðar nægjanleg miðað við allar framtíðarspár. Einnig er verið að byggja bílakjallara undir Sóleyjartorgi, sambærilegum bílakjallara Hörpunnar sem er á tveimur hæðum þar sem verða 200 bílastæði, ætluð sjúklingum og gestum.

Þar verður gott aðgengi beint inn í spítalann. Úr bílastæða og tæknihúsinu verður einnig hægt að ganga á milli húsa eftir göngum.

Tæknihluti hússins er afar mikilvægur, þar verður tæknirými fyrir varaaflsvélar Landspítalans þannig að tryggt sé að rafmagn verði til staðar hér á öllu svæðinu ef truflanir verða á afhendingu rafmagns og það sama gildir um búnað fyrir varakyndingu ef skortur verður á heitu vatni.

Þá er hér kælikerfi spítalans en loftinntök og öll loftræsing innan spítalans ,sama hvaða hús það eru, sem skiptir verulegu máli í starfseminni.

Heimild: NLSH ohf.