Home Fréttir Í fréttum 07.06.2022 Lýsingabúnaður fyrir innilaug Laugadalslaugar

07.06.2022 Lýsingabúnaður fyrir innilaug Laugadalslaugar

191
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Lýsingabúnaður fyrir innilaug Laugadalslaugar, útboð 15545

Bjóðandi skal leggja til lýsingarbúnað og hönnun fyrir innilaug Laugardalslaugar samkv. útboðsgögnum.

Lýsingarbúnaður og lýsingarhönnun þarf að henta fyrir sjónvarpsupptökur á íþróttaviðburðum. Laugardalslaugin fellur í flokk fyrir minni alþjóðlega viðburði í samræmi við staðalinn EN 12193 Lighting Class 1.

Það skal vera hægt að dimma lýsingu með DALI stýringu og tryggja mismunandi ljósasenur fyrir mismunandi notkun laugarinnar.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 16:00 þann 13. maí  2022. 
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:000 þann 7. júní 2022.