Home Fréttir Í fréttum 30.05.2022 Hverfið mitt 2022 – Vestur – Háaleiti og Bústaðir

30.05.2022 Hverfið mitt 2022 – Vestur – Háaleiti og Bústaðir

130
0
Mynd: Morgunblaðið/Sigurður Bogi

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hverfið mitt 2022 – Vestur – Háaleiti og Bústaðir, útboð nr. 15546

Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2022 í vesturhluta Reykjavíkurborgar.

Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir jarðvinna, stígalýsing, hellulögn, gróðursetning og þökulögn.

Helstu magntölur eru:

  • Gröftur                        1.130 m3
  • Fylling                          639   m3
  • Ljósastólpar                   16   stk.
  • Hellulögn                      520   m2
  • Þökulögn                   11.550 m2
  • Tré -stofntré                  45   stk.

Verklok: 31. október 2022.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 16:00 þann 13. maí  2022. 
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 30. maí 2022.