Home Fréttir Í fréttum 20.05.2022 Skaftárhreppur óskar eftir tilboðum í jarðvinnu, sökkla og reisingu áhalda- og...

20.05.2022 Skaftárhreppur óskar eftir tilboðum í jarðvinnu, sökkla og reisingu áhalda- og flokkunarhúss

120
0
Mynd: Klaustur.is

Skaftárhreppur óskar eftir tilboðum í jarðvinnu, sökkla og reisingu áhalda- og flokkunarhúss á Stjórnarsandi neðan Gámavallar

<>

Verkið felur í sér jarðvegsskipti, steypa sökkla  og að reisa stálgrindarhús, einangra það og klæða að utan sem innan.

Helstu magntölur eru:

Grunnflötur húss er (14×38,4m) 537,4 m2

Gröfur 650 m3

Fylling, undir sökkla, þjappað burðarhæft 400 m3

Fylling, inn í sökkla/grunn 400 m3

Fylling, að sökklum, þjappað burðarhæft 100 m3

Sökklar, mót 340 m2

Sökklar, steinsteypa C30/37 50 m3

Steypustyrktarjárn (verkkaupi leggur til efni), vinna Heild

Reising á húsi (verkkaupi leggur til allt efni):

Innifalin öll vinna, tæki og tól sem þarf til verksins

Verkkaupi leggur til allt efni auk gönguhurða og glugga

Iðnaðarhurðir eru þó undanskildar

Hægt er að bjóða í hvern og einn verkhluta fyrir sig eða verkið í heild

Heildarverkinu skal lokið 15. júlí 2022.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka þeim tilboðum sem metin eru hagstæðust eða hafna öllum.

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með fimmtudeginum 5. maí 2022. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við undirritaðan með tölvupósti í netfangið bygg@klaustur.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið gögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 4, 880 Kirkjubæjarklaustri fyrir kl. 11.00 föstudaginn 20. maí 2022 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Previous articleSvona vill Vegagerðin tvöfalda Suðurlandsveg við Rauðavatn
Next article30.05.2022 Kársnesskóli Þinghóli Kópavogi, loftræsting og lagnir í vesturbyggingu