Home Í fréttum Niðurstöður útboða Aðeins eitt tilboð barst í verkið – endurbætur í stjórnendaálmu Grundaskóla á...

Aðeins eitt tilboð barst í verkið – endurbætur í stjórnendaálmu Grundaskóla á Akranesi

415
0
Mynd: Skagafrettir.is

Akraneskaupstaður óskaði nýverið eftir tilboðum í verkið „Grundaskóli E-álma – endurbætur“,

<>

Eitt tilboð barst í verkefnið og var það tæplega 48 milljónum kr. yfir kostnaðaráætlun eða 56%.

Trésmiðja Þráins E Gíslasonar bauð 132,4 milljónir kr. í verkefnið þar sem unnið verður að endurbótum í stjórnendaálmu skólans. Kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar var 84,7 milljónir kr.

Ásbjörn Egilsson verkefnastjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Skipulags- og umhverfisráð fól Ásbirni Egilssyni verkefnastjóra Akraneskaupstaðar frekari vinnslu málsins.

Heimild: Skagafrettir.is