F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:
Hverfið mitt 2022 – Vestur – Miðborg og Hlíðar, útboð 15526
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2022 í vesturhluta Reykjavíkurborgar.
Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir jarðvinna, stígalýsing, hellulögn, gróðursetning og þökulögn.
Helstu magntölur eru:
- Gröftur 435 m3
- Fylling 350 m3
- Hellulögn 360 m2
- Þökulögn 700 m2
- Tré -stofntré 52 stk.
Áætluð verklok: 30. september 2022.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00, 28. apríl 2022. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15, 11. maí 2022.