Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Arnarnesvegur (411), undirgöng á Arnarneshæð

Opnun útboðs: Arnarnesvegur (411), undirgöng á Arnarneshæð

536
0

Vegagerðin og Garðabær bjóða hér með út gerð undirganga undir Arnarnesveg fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Núverandi göngu- og hjólastígur beggja vegna Arnarnesvegar verður lagfærður og lagður í undirgöng undir veginn.

<>

Gatnamót yfir undirgöngum verða jafnframt lagfærð, beygjureinum breytt og gönguleiðir uppfærðar. Hluti af framkvæmdinni er einnig gerð bráðabirgða vega og stíga fyrir umferð akandi, gangandi og hjólandi á framkvæmdatíma.

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Garðabæjar.

Helstu magntölur eru:

  • Gröftur  10.000 m3
  • Bergskering  6.400 m3
  • Fyllingar  2.000 m3
  • Járnbending  119.000 kg.
  • Steypa  880 m3
  • Malbikun  2.000 m2
  • Vegrið  370 m
  • Ljósabúnaður og staurar  77. stk.
  • Stólpar og undirstöður umferðarljósa 14. stk.

Verkinu skal að fullu lokið 31. nóvember 2022.