Home Fréttir Í fréttum Vindmyllan féll við sjöttu sprengingu

Vindmyllan féll við sjöttu sprengingu

94
0
Mynd: Kristinn Þeyr Magnússon / RÚV
Sex sprengjur þurfti til þess að fella vindmyllu í Þykkvabænum í dag. Ákveðið var að fella vindmylluna eftir að það kviknaði í henni á nýársdag.

Tvær vindmyllur eru í Þykkvabænum en fyrirtækið sem reisti þær er gjaldþrota. Ásgeir Margeirsson, formaður Háblæs, sagði í hádegisfréttum að til stæði að fella aðra þeirra til að forða tjóni, sérstaklega nú þegar von er á slæmu veðri.

<>

Hlutar hennar gætu jafnvel brotnað af í miklum vindi og því yrði reynt að fella hana í dag. En dagurinn dugir varla til, því þrjár tilraunir sprengjusveitarinnar hafa ekki skilað árangri.

Myllurnar eru þýsk smíði og virðast nokkuð traustar. Þær voru gangsettar 2014 en voru fluttar hingað frá Þýskalandi. Vonast var til að hægt yrði að ljúka verkinu fyrir myrkur en það tókst ekki.

Nokkur bið var eftir sjöttu og síðustu sprengingunni, þar sem aka þurfti meira sprengiefni frá borginni yfir í Þykkvabæ.

Heimild: Ruv.is