Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Nýr Landspítali: Staða byggingaframkvæmdanna við árslok 2021

Nýr Landspítali: Staða byggingaframkvæmdanna við árslok 2021

237
0
Mynd: NLSH.is

Staða byggingaframkvæmdanna í janúar 2021

<>

Við áramót er gott að líta um öxl og sjá farinn veg og þegar myndir eru bornar saman, teknar með ársmillibili í framkvæmdunum við meðferðarkjarnann, má glöggt sjá hversu miklu var áorkað á árinu 2021.

Þegar þessi mynd var tekin, í byrjun janúar árið 2021, var greftri lokið og næsta fasi í startholunum.

Þarna má sjá hraukana, eða stallana, sem urðu eftir en líka að tengigangar yfir í nærliggjandi byggingar eru komnir á sinn stað. Netið sem hylur norðanvegginn er til að varna hruni í grunninn.

Staða byggingaframkvæmdanna við árslok 2021

Mynd: NLSH.is

Þegar nýrri myndin er skoðuð má sjá hversu geysilega mörg handtök liggja að baki og neðri kjallari meðferðarkjarnans farinn að taka á sig mynd. Margir byggingakranar gnæfa yfir húsgrunninn og greinilegt hversu miklar járnabindingar eru í grunni og veggjum.

Rík áhersla er lögð á snyrtilegt vinnusvæði en rétt utan myndar, til hægri, er þvottastöð sem vörubílar verða að fara í gegnum þegar ekið er með farm út fyrir vinnusvæðið.

Búið er að setja útsýnisglugga þar sem sjá má yfir svæðið, en hann er að finna á girðingunni norðanmegin við Kvennadeild.

Á myndinni má greina hann rétt ofan við tengiganginn til hægri.

Heimild: NLSH.is