Home Fréttir Í fréttum Fyrir­hugaður ís­firskur milljarða­kláfur þarf í um­hverfis­mat

Fyrir­hugaður ís­firskur milljarða­kláfur þarf í um­hverfis­mat

86
0
Hér sést glitta í hlíðar Eyrafjalls, en fyrirhugað er að kláfurinn verði settur þar upp. VÍSIR/EGILL

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur staðfest ákvörðun Skipulagsstofnunar þess efnis að fyrirhugaður kláfur í hlíðum Eyrarfjalls í Ísafirði þurfi í umhverfismat.

<>

Vísir greindi frá því árið 2019 að hópur fjárfesta væri tilbúinn til að verja tveimur og hálfum milljarði til að reisa kláfalyftu á Ísafirði, í hlíðum Eyrarfjalls. Rekstrargrundvöllurinn var meðal annars byggður á fjölda skemmtiferðaskipa sem koma við á Ísafirði á hverju sumri.

Skipulagsstofnun ákvað í sumar að framkvæmdin væri háð umhverfismati en forsvarsmenn Eyrarkláfs ehf., sem standa að hinni fyrirhuguðu uppbyggingu, kærðu á niðurstöðu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og vildu fá hana fellda úr gildi.

Skíðabann í kláfnum
Félagið hélt því fram að kláfalyfta væri einmitt tilfallin til þess að valda sem minnstu umhverfisraski.

Einn staur yrði settur upp á leiðinni upp. Þá væri að mati félagsins ekki séð að kláfurinn kæmi til með að valda grjót- eða snjóflóðum, ekki síst þar sem kláfurinn yrði ekki starfræktur á veturna. Auk þess yrði bannað að fara með skíði í kláfinn.

Afstöðumynd frá Odin Skylift sem sýnir hvernig lyftan mun liggja upp Eyrarhlíð fyrir ofan bæinn

Einnig yrðu engir slóðar, vegir eða skurðir gerðar í hlíðar fjallsins.

Af hálfu Skipulagsstofnunar var tekið fram að ástæða þess að stofnunin telji framkvæmdina háða mati á umhverfisáhrifum sé fyrst og fremst möguleg áhrif hennar á ásýnd og landslag.

Ráðist það af því að fyrirhugað sé að koma fyrir umfangsmiklum mannvirkjum í hlíð og á toppi fjalls nálægt þéttbýli sem ásamt kláfhúsi kunni að vera sýnileg víða úr Ísafjarðarbæ, en fyrir liggi að útlit byrjunar- og endastöðva sé á hönnunarstigi.

Í niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar segir að með hliðsjón af gögnum málsins verði ekki annað séð en að Skipulagsstofnun hafi séð til þess að málið væri nægjanlega upplýst áður en ákvörðun um að framkvæmdin þyrfti í umhverfismat væri tekin.

Var kröfunni því hafnað og því ljóst að umhverfismat þarf að fara fram svo kláfalyftan eigi að verða að veruleika.

Heimild: Visir.is