Mikill áhugi er meðal alþjóðlegra verktaka að grafa fyrstu skipagöng heims í Noregi. Stefnt er að því að gerð ganganna verði boðin út á fyrri hluta nýs árs.
Í fréttum Stöðvar 2 kom fram að undirbúningur skipaganganna hafi staðið yfir í hartnær áratug. Myndir voru sýndar af því þegar skipstjórar voru látnir prófa þau í sérstökum siglingahermi.
Göngin hafa einnig kostað áralangar pólitískar þrætur en gagnrýnendur hafa sagt þau fjárhagslegt glapræði. Endanlegt samþykki norska Stórþingins fyrir gerð ganganna fékkst þó síðastliðið vor en nýjustu áætlanir gera ráð fyrir að þau muni kosta í kringum fimmtíu milljarða íslenskra króna.
Skipagöngin verða 1,7 kílómetrar að lengd, 36 metrar á breidd og 50 metrar á hæð en þar af verður þriðjungurinn undir sjávarmáli. Megintilgangur þeirra er sagður sá að auka öryggi sjófarenda með því að sneiða framhjá einhverri hættulegustu siglingaleið heims, röstinni úti fyrir Stað milli Álasunds og Bergen. Stuðningsmenn skipaganganna segja þau jafnframt verða mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem einstakt mannvirki á heimsvísu.
Áformað er að útboðið hefjist á fyrri hluta næsta árs og að samningar við verktaka verði undirritaðir öðru hvoru megin við þarnæstu áramót. Áætlað er að framkvæmdir hefjist sumarið 2023 og að göngin verði opnuð skipaumferð árið 2026.
Verkefnisstjóri ganganna segist upplifa mikinn áhuga alþjóðlegra verktaka. Í viðtali við norska fréttamiðilinn Teknisk Ukeblad bendir hann á að 170 aðilar hafi nýlega sótt rafræna undirbúningsráðstefnu á netinu sem norska hafnamálastofnunin Kystverket hélt fyrir áhugasama bjóðendur.
„Áhuginn er mikill úr öllum heimshornum. Það er eins og þetta sé verkefni sem stórir verktakar vilji hafa á ferilskrá sinni,“ segir verkefnisstjórinn Terje Skjeppestad.
Hann bendir að verkefnið kunni að vera of stórt til að norskir verktakar ráði einir við það. Um leið geti verið erfitt fyrir alþjóðleg fyrirtæki að treysta alfarið á innfluttan mannskap sem þekki lítt til staðhátta. Það megi því búast við að samstarfshópar myndist um tilboðsgerð.
Á þátttökulista ráðstefnunnar voru allir helstu verktakar Noregs í jarðgangagerð, eins og Veidekke, Hæhre, Implenia, Kruse Smith og Skanska.
Meðal alþjóðlegra verktaka eru nefndir Marti og Basler & Hofmann frá Sviss, Acciona, Obrascón og Aldesa frá Spáni, Astaldi og Impresa frá Ítalíu, Boskalis frá Svíþjóð og China Railway International Group frá Kína.
Sem dæmi um stærð þessara fyrirtækja er nefnt að hið spænska Acciona er með 38 þúsund starfsmenn í 40 löndum.
Heimild: Visir.is