Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Hringvegur (1) Biskupstungnabraut – Hveragerði, Ölfusvegur um Varmá, eftirlit

Opnun útboðs: Hringvegur (1) Biskupstungnabraut – Hveragerði, Ölfusvegur um Varmá, eftirlit

176
0

Vegagerðin bauð út eftirlit með útboðsverkinu Hringvegur (1) Biskupstungnabraut – Hveragerði, Ölfusvegur um Varmá.

<>

Verkið felur í sér eftirlit með nýbyggingu á u.þ.b. 780 m löngum vegkafla á Ölfusvegi og Sunnumörk í Hveragerði og gerð nýrrar brúar á Varmá norðan Suðurlandsvegar og reiðstígs undir brúna.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í september 2022.

Val bjóðanda fór fram á grundvelli hæfismats og verðs og bar bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Eftir lok tilboðsfrests, þriðjudaginn 14. desember 2021, var bjóðendum tilkynnt um nöfn þátttakenda í útboðinu.

Þriðjudaginn 21. desember 2021 var verðtilboð hæfra bjóðenda opnað. Allir bjóðendur uppfylltu hæfisskilyrði útboðsins og stóðust hæfnimat.