Opnun tilboða 13. júlí 2021.
Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir á tilteknum leiðum í uppsveitum Árnessýslu 2021-2024.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild til framlengingar til tveggja ára eitt ár í senn.
Heildarlengd vegakafla er 309 km.
Akstur vörubíla á snjómokstursleiðunum er áætlaður 52.000 km. á ári.
Tilboð eru án virðisaukaskatts og miðast við samningstímann sem er 3 ár.