Fram kom á fundi byggðarráðs í maí að framkvæmdir við grunnskólann hefðu farið töluvert fram úr áætlun á síðasta ári.
Ástæðurnar voru sagðar margvíslegar, meðal annars var húsið í mun verra ástandi en upphaflega var talið. Í ljós kom líka að misræmi var milli verkbókhalds eftirlitsaðila og bókhalds Borgarbyggðar.
Ákveðið var að fara ofan í saumana á þessu misræmi, finna frávikin og greina þau.
Niðurstaðan var kynnt á fundi byggðarráðs í morgun. Rúmlega 105 milljónir höfðu verið skráðar á verkefnið án samþykkis eða vitneskju eftirlitsaðila.
Fram kemur í bókun byggðarráðs að mögulega hafi einhverjir reikningar verið samþykktir sem ekki áttu rétt á sér og þar gæti því verið ofgreiðsla.
Byggðarráð telur þessa stöðu alvarlega og lagði til á fundi sínum að KPMG yrði falið að gera hlutlausa úttekt á verkefninu í heild.
Nauðsynlegt væri að fara yfir alla reikninga sem hefðu verið bókaðir inn á verkið og greina þá.
Heimild: Ruv.is