Bauhaus á Norðurlöndunum urðu fyrir tölvuárás á föstudaginn sem varð til þess að tölvukerfi fyrirtækisins liggur niðri.
Áhrif árásarinnar ná til Íslands en í tilkynningu frá Bauhaus á Íslandi kemur fram að vöruhúsið sé opið þrátt fyrir takmarkanir og verslunin muni gera sitt besta til að þjónusta viðskiptavini.
Aðalsímkerfi Bauhaus liggur niðri og eru viðskiptavinir því beðnir um að hafa samband í gegnum skilaboð á fésbókarsíðu fyrirtækisins, eða í síma 839 – 5800.
Hægt er að greiða með greiðslukorti, peningum og millifærslu í vöruhúsinu.
Sem stendur er ekki hægt að:
- Fá endurgreidda skilavöru
- Gera sérpantanir
- Sækja sérpantanir
- Bóka kerru í kerruleigu
- Nýta viðskiptamannanúmer við kaup
- Skrá á reikning
Í samtali við mbl.is sagði Tómas, starfsmaður Bauhaus að það væri mikið að gera og þessu fylgdi aukið álag sem lendir þó meira á þjónustuborðinu en þeim sem starfa í vöruhúsinu. Hann sagði að það væri ekkert vitað um hvenær tölvukerfið kæmist í lag aftur.
Heimild: Mbl.is