Home Fréttir Í fréttum Hönnunarsamkeppni: Ætla að gera Lækjartorg að rými fyrir fólk

Hönnunarsamkeppni: Ætla að gera Lækjartorg að rými fyrir fólk

65
0
Reykjavíkurborg og Félag íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA) efna til hönnunarsamkeppni um Lækjartorg og aðliggjandi gatnarými. Mynd: VÍSIR/VILHELM

Reykjavíkurborg og Félag íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA) hafa efnt til hönnunarsamkeppni um Lækjartorg og aðliggjandi gatnarými.

<>

Nú er óskað eftir þátttakendum og öllum er frjáls þátttaka.

Lýst er eftir tillögum að hönnun sem hefur „rými fyrir fólk“ að leiðarljósi, segir í tilkynningu á vef borgarinnar.

Hönnun skal vera í samræmi við stefnumörkun borgaryfirvalda eins og hún birtist í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi.

Einnig þarf að hafa Borgarlínustöð sem rís á staðnum til hliðsjónar.

Ekki stendur til að rífa Strætóhúsið á torginu, heldur aðeins uppfæra götumyndina og torgið sjálft.

Meginmarkmiðið með keppninni er að til sé mjög skýr áætlun og hönnun fyrir umrætt svæði sem ýti undir að mannlíf og rekstur geti blómstrað og dafnað á svæðinu til framtíðar.

Þar skipta ákveðin atriði höfuðmáli, samkvæmt tilkynningunni: Styrkja skal svæðið sem kjarnasvæði sem gleður augað og hvetur til jákvæðra samskipta á milli mismunandi aldurs- og þjóðfélagshópa. Draga fram sögu svæðisins með áhugaverðum hætti.

Skapa rými sem henta öllum árstíðum. Ná fram heildstæðu yfirbragði þar sem hið gamla mætir hinu nýja á sannfærandi hátt. Skapa öruggt borgarumhverfi fyrir alla.

Gera grein fyrir vörulosun, hleðslustöðvum og staðsetningum deilihjóla og öðrum götugögnum. Taka mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni. Styðja við og styrkja nýja og núverandi starfsemi á götuhliðum jarðhæða sem snúa að samkeppnissvæðinu.

Skapa rými sem eru sveigjanleg, að þau rúmi fjölsótta viðburði og uppákomur en séu jafnframt vistleg hversdagslega.

Forvalsnefnd fer yfir umsóknir sem berast og velur þrjú teymi til þátttöku á síðara þrepi samkeppninnar á grundvelli mats og neðangreindra skilagagna sem óskað er eftir þ.e. ferilskrá, kynningarmöppu og sýn eða lýsingu teyma á verkefninu.

Hæfni sem telst til virðisauka er til dæmis hönnun á almenningsrýmum innan borga og bæja.

Heimild: Visir.is