Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Hringvegur (1) um Kjalarnes 2. áfangi, Vallá – Hvalfjörður. Eftirlit...

Opnun útboðs: Hringvegur (1) um Kjalarnes 2. áfangi, Vallá – Hvalfjörður. Eftirlit og ráðgjöf

140
0

Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með breikkun Hringvegar (1) um Kjalarnes í 2+1 veg frá Vallá að Hvalfirði.

<>

Um er að ræða um 5,5 km langan vegkafla með hringtorgum við Móa og Dalsmynni, nýjum undirgöngum við Grundarhverfi og Arnarhamar, lengingu á undirgöngum við Vallá, nýtt stálplöturæsi/brú yfir Ártúnsá við Bakkaveg, lengingu á stálplöturæsi/brú yfir Ártúnsá við Hringveg auk hliðarvega, stíga og veitukerfa.

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Veitna og Gagnaveitu Reykjavíkur.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

 

Eftir lok tilboðsfrests, 23. apríl 2021, var bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.

Þann 28. apríl 2021 var verðtilboð hæfra bjóðenda opnað. Allir bjóðendur uppfylltu hæfisskilyrði útboðsins og stóðust hæfnimat.