Vegagerðin óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu í 7 námum á Austurlandi 2021- 2022.
Helstu magntölur eru:
- Burðarlag 17.500 m3
- Klæðingarefni 25.100 m3
- Sandur/úrharp 9.340 m3
Verki skal að fullu lokið 1. september 2022
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 31 mars 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. apríl 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.