Home Fréttir Í fréttum 08.05.2026 Fjallabyggð: Hönnun og byggingu knatthúss í Ólafsfirði – Alútboð

08.05.2026 Fjallabyggð: Hönnun og byggingu knatthúss í Ólafsfirði – Alútboð

336
0
Mynd: hedinsfjordur.is

Sveitarfélagið Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í hönnun og byggingu knatthúss í Ólafsfirði samkvæmt útboðs- og verklýsingu.

Um er að ræða alútboð þar sem bjóðandi skal sjá um alla hönnun mannvirkisins og byggingu þess samkvæmt forskrift verkkaupa.

Verkþættir í verkinu eru meðal annars:

  • Knatthús Stálgrind og klæðning
  • Burðarvirki – steypa Undirstöður húss
  • Lágbygging Anddyri, salerni, geymsla
  • Hönnun Öll hönnun bygginga
  • Lagnir og loftræsing Í knatthús og lágbyggingu
  • Raflagnir Í knatthús og lágbyggingu

Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 31. desember 2026.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með þriðjudeginum 24.mars 2026. Beiðni um afhendingu gagna skal send í tölvupósti á netfangið rab@verkis.is með „Knatthús í Ólafsfirði“ skráð í viðfangslínu tölvupósts.

Útboðsgögn afhent: 24.03.2026 kl. 10:00
Skilafrestur 01.05.2026 kl. 13:00
Opnun tilboða: 08.05.2026 kl. 13:00

Tilboðum skal skila til VERKÍS að Austursíðu 6, 603 Akureyri fyrir klukkan 13.00 1. maí 2026 á þann hátt sem líst er í útboðslýsingu.