Verkið felur í sér að byggja dælustöð fráveitu við núverandi fráveitubrunn, við Hafnarbakka 8, Þorlákshöfn. Fjarlægja skal núverandi dælur og lagnir upp úr núverandi brunni.
Koma skal fyrir dælum og þrýstilögnum í dælustöðinni og tengja að lokum við þrýstilögn sem liggur að hreinsistöð fráveitu að Hafnarbakka 10.
Einnig skal tengja aðrar lagnir, ganga frá yfirborði og opna á milli blautrýmis dælustöðvar og núverandi fráveitubrunns.
| Útboðsgögn afhent: | 23.03.2026 kl. 13:00 |
| Skilafrestur | 10.04.2026 kl. 14:00 |
| Opnun tilboða: | 10.04.2026 kl. 14:00 |












