Home Fréttir Í fréttum Steinull hf. Á Sauðárkróki fagnar því að 30 ár eru síðan verksmiðjan...

Steinull hf. Á Sauðárkróki fagnar því að 30 ár eru síðan verksmiðjan var formlega tekin í notkun

209
0
Steinull hf. á Sauðárkróki Mynd: BJB.

Steinull hf. Á Sauðárkróki fagnar því í nú að 30 ár eru síðan verksmiðjan var formlega tekin í notkun.

<>

Fyrsta framleiðsla Steinullarverksmiðjunnar hf á Sauðárkróki kom á markaðinn seinnihluta árs 1985. Fyrir þann tíma hafði undirbúningur að starfssemi verksmiðjunnar staðið yfir í nokkur ár að frumkvæði heimamanna á Sauðárkróki, sem í þeim tilgangi stofnuðu með sér Steinullarfélagið h.f.

Stofnendur Steinullarverksmiðjunnar h.f voru síðan Ríkissjóður, Partek AB, Sauðárkróksbær, Steinullarfélagið h.f, Kaupfélag Skagfirðinga og Samband Íslenskra Samvinnufélaga. Með aðkomu finnska steinullarframleiðandans Partek var tryggður aðgangur að nýjustu framleiðslutækni og hefur samstarf fyrirtækjanna reynst afar farsælt æ síðan.

Heimild: Feykir.is