Vegagerðin óskar eftir tilboðum í malarvinnslu á Norðursvæði 2021, útboð A, malarslitlag (0/16).
Helstu magntölur eru:
Efnisvinnsla í 4 námum á Norðurlandi, samtals 20.000 m3
Verki skal að fullu lokið 1. október 2021
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 8. mars 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. apríl 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.