Tilboð opnuð 2. mars 2021. Hafnarstjórn Snæfellsbæjar óskaði eftir tilboðum í endurbyggingu Norðurtanga í Ólafsvík.
Helstu verkþættir eru:
· Brjóta og fjarlæga kant, polla og þekju á núverandi bryggju.
· Jarðvinna, uppúrtekt, fylling og þjöppun.
· Þilskurður fyrir stálþilrekstur um 128m.
· Reka niður 94 tvöfaldar stálþilsplötur og ganga frá stagbitum og stögum.
· Steypa um 130 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 31. október 2021.