Home Í fréttum Niðurstöður útboða ÍAV bauð best í 5,3 milljarða verkefni á Keflavíkurflugvelli

ÍAV bauð best í 5,3 milljarða verkefni á Keflavíkurflugvelli

622
0
Flugskýli 831 á Keflavíkurflugvelli. Mynd: Utanríkisráðuneytið

Verktakafyrirtækið ÍAV varð hlutskarpast í útboði bandaríska varnarmálaráðuneytisins á hönnun og framkvæmdum vegna flughlaða og tengdra verkefna á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

<>

Útboðið var auglýst í júlímánuði 2019 en bandarísk yfirvöld fjármagna alfarið framkvæmdirnar.

Að undangengnu forvali var valið úr ákveðnum fjölda íslenskra og bandarískra fyrirtækja sem heimilt var að bjóða í verkið og varð ÍAV hlutskarpast sem fyrr segir.

Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á tæpar 39 milljónir bandaríkjadala eða 5,3 milljarða króna. Það er undir kostnaðaráætlun bandaríska varnarmálaráðuneytisins en heildarfjárheimild bandaríska þingsins hljóðaði upp á 57 milljónir dala.

Um þrjú verkefni er að ræða. Í fyrsta lagi hönnun og verkframkvæmdir við stækkun á flughlaði innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli.

Í öðru lagi hönnun og verkframkvæmdir fyrir færanlegar gistieiningar. Í þriðja lagi hönnun og verkframkvæmdir vegna færslu á flughlaði fyrir hættulegan farm.

Áætluð verklok eru í febrúar 2023.

Auk ofangreindra framkvæmda standa nú yfir eða eru í undirbúningi framkvæmdir sem hafa verið samþykktar á öryggissvæðinu.

Þar má nefna breytingar og endurbætur á flugskýli 831, byggingu þvottastöðvar fyrir flugvélar og viðhald og endurbætur á flughlöðum, akstursbrautum og ljósakerfum.

Auk þess hafa verið gerðar umfangsmiklar uppfærslur á ratsjárkerfunum og kerfisbúnaði í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Samanlagt er því um að ræða allt að 21,5 milljarða króna á tímabilinu 2018-2023 sem að mestum hluta er fjármagnað af Atlantshafsbandalaginu og bandarískum stjórnvöldum.

Heimild: Stjórnarráðið