Home Fréttir Í fréttum Framlengdur skilafrestur tilboða – Útboð vegna framkvæmda við búsetukjarna fyrir íbúa með...

Framlengdur skilafrestur tilboða – Útboð vegna framkvæmda við búsetukjarna fyrir íbúa með fötlun í Ólafsvík

213
0
Mynd: Teiknistofan AVH á Akureyri

Verkís hf., fyrir hönd Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, óskar eftir tilboðum í framkvæmdir vegna byggingar 5 íbúða, ásamt starfsmannaaðstöðu, búsetuþjónustukjarna fatlaðs fólks við Ólafsbraut 62-64, Ólafsvík

<>

Verkið nær til fullnaðarfrágangs alls verksins. Verktaki skal steypa grunn, reisa hús, innrétta, ganga frá utanhúss sem og innan og fullgera húsið samkvæmt útboðsgögnum.

Nokkrar magntölur:
Flatarmál húss: 441 m² 1370 m3
Þak og botnplata 357 m3

Verktaki tekur við byggingarsvæði í núverandi ástandi. Búið er að fylla undir undirstöður, fylla í bílastæði og girða athafnarsvæði og setja upp hlið inn á vinnusvæðið.

Verklok á heildarverki eru 30. ágúst 2021, útboðsgögn verða afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst á netfangið anmt@verkis.is þar sem fram kemur heiti verks, nafn bjóðanda, netfang og símanúmer tengiliðs bjóðanda.

Tilboðum skal skila rafrænt á netfangið anmt@verkis.is fyrir kl.13.00, 15. maí 2020.
Tilboð verða opnuð á fjarfundi kl. 13.30, sama dag, 15. maí 2020.

Félags-og skólaþjónusta Snæfellinga og Verkís